Tíska og hönnun

Huffington Post fjallar ítarlega um íslensku ullarpeysuna

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Bandaríska útgáfa The Huffington Post setti inn ítarlega umfjöllun um íslensku ullarpeysuna á heimasíðu sína nú rétt fyrir helgi. Blaðamaður þar á bæ heimsótti Ísland fyrir stuttu og heillaðist af landi og þjóð. En mest heillaðist hún þó af ullarpeysunni góðu og sögunni á bak við hana.

Blaðamaðurinn hefur orð á því að hún hafi séð peysurnar í öllum stærðum og gerðum ,,í næstum öllum búðum sem hún steig fæti inn í". Fréttin er mikið myndskreytt og greinilegt að hún hefur fylgst grannt með þeim sem urðu á vegi hennar í lopapeysum. Einnig talar hún um hvernig íslenska ullin er sérstök að því leyti að íslenska sauðkindin sé algjörlega hreinn kindastofn sem hafi haldið hita á þjóðinni í margar aldir.

Það er því fremur kaldhæðnislegt þegar hún flettir ofan að því að peysan hafi í raun ekki komið fram á sjónarsviðið í núverandi mynd fyrr en upp úr 1950, þegar nóbelsfrúin Auður Laxness kom til landsins með svipaða peysu frá Grænlandi eftir heimsókn þar.

Blaðamaðurinn virðist samt sem áður hafa mikið álit á peysunni og talar t.d. skemmtilega um flíspeysur og jakka í ullarpeysustíl sem Farmers Market og 66 gráður norður hafa sent frá sér. Greinina má lesa í heild sinni hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×