Tíska og hönnun

Michelle Obama klæddist Jason Wu

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Það fór ekki framhjá neinum að Barack Obama sór forsetaeiðinn í vikunni. Tískuheimurinn beið þess að sjá hverju forsetafrúin myndi klæðast við tilefnið , en síðustu vikur hafa margir reynt að rýna í klæðaburð hennar í gegnum tíðina og reyna þannig að spá fyrir um klæðnaðinn.

Svo fór að hún klæddist sérsaumuðum kjól frá hönnuðinum Jason Wu sem klæddi hana einstaklega vel. Þá var hún í skóm frá Jimmy Choo. Michelle virðist kunna vel við hönnun Jason Wu, þar sem hún klæddist einnig kjól frá honum þegar eiginmaður hennar sór eiðinn árið 2009.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×