Tíska og hönnun

Snúðar í sumar

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Það er alltaf þægilegt að smella hárinu í háan snúð þegar maður er á hraðferð. Þess vegna hentar ansi vel að snúðarnir verða eitt heitasta hártrendið í sumar.

Margar fegurðardísir í Hollywood hafa sést með snúða upp á síðkastið. Við skulum skoða hvernig þær útfærðu þessa einföldu hárgreiðslu.

Beyonce lítur vel út með ljóst hár, topp og snúð.
Fyrirsætan Miranda Kerr óaðfinnanleg með ballerínusnúð.
Gwen Stefani flott með sjúskaðan snúð.
Kristen Ritter glæsileg með snúð og topp.
Snúðurinn klæðir Kim Kardashian mjög vel.
Mad Men barnastjarnan Kiernan Shipka sást með þennan fína snúð á Young Hollywood Awards á dögunum.
X-factor dómarinn Demi Lovato.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×