Tíska og hönnun

Íslensk fyrirsæta gengur sýningarpallana í New York

Tískuvikan í New York stendur nú sem hæst. Þegar farið er í gegnum sýningar hjá helstu hönnuðum heims er fátt skemmtilegra en að rekast á kunnugleg andlit, en Lífið rak augun í íslensku fegurðardísina Brynju Jónbjarnardóttur á Style.com í gær. Þar gekk hún sýningarpallinn fyrir hönnuðinn Billy Reid og var þar í hópi með mörgum af farsælustu fyrirsætum dagsins í dag.

Brynja Jónbjarnardóttir sýndi fyrir Billy Reid á tískuvikunni í New York í gær.
Brynja hefur starfað sem fyrirsæta síðustu ár og er búsett í New York um þessar mundir. Það verður spennandi að fylgjast með henni á næstu árum.

Glæsileg.
Brynja Jónbjarnardóttir.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×