Tíska og hönnun

Kynnir haustlínuna á tískuvikunni í Kaupmannahöfn

Ellý Ármanns skrifar
Guðrún Kristín Sveinbjörnsdóttir fatahönnuður tekur nú þátt í tískuvikunni í Kaupmannahöfn í þriðja sinn með vörumerki sitt, GuSt. Á vörusýningu í tengslum við tískuvikuna kynnir GuSt fatalínu sína fyrir næskomandi haust og vetur.

Vörur GuSt hafa hlotið góðar viðtökur. Nú þegar hefur ný verslun bæst við sölustaðina í Danmörku, auk þess sem GuSt hefur verið boðið að vera með vörur í dönsku vefversluninni Miinto. Á þessu ári eru 10 ár síðan GuSt ehf var stofnað og 16 ár síðan Guðrún Kristín hóf fyrst sölu á fatnaði undir vörumerkinu GuSt.

"Af því tilefni er ýmislegt á döfinni um þessar mundir. Logoið hefur verið endurhannað, ný heimasíða er í þróun sem og ýmis konar frekari kynning á vörumerkinu, bæði hér heima og erlendis," segir Guðrún í samtali við Lífið.

Á meðfylgjandi myndum má sjá brot úr haustlínu GuSt. Edit Ómars sá um myndatöku. Fyrirsæta er Helena Ríkey frá Elite.

Rauður silkitoppur og þröngt pils.
Gust.is

Þröngar buxur og peysa úr íslenskri ull.
Dökk grár jakki úr leðri og ullarefni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×