Tíska og hönnun

Kjóll sem gengur ekki upp

Það er alltaf töfrandi að fylgjast með flíkum á sýningarpöllum, og magnað að sjá hvernig ólíklegustu hlutir geta gengið upp þar. Á hinn bóginn getur stundum verið erfitt að færa þessa flíkur yfir í raunveruleikann. Þetta fékk ástralska leikkonan Isabel Lucas að reyna, en hún mætti í þessum kjól úr vor og sumarlínu Christian Dior í opnunarpartý í Sidney fyrir skömmu. Kjóllinn er vægast sagt skelfilegur, krumpaður, sniðið slæmt og hann gerir ekkert fyrir Lucas.

Hér má sjá Isabel Lucas í kjólnum.
Hér er kjóllinn á sýningarpalli Christian Dior og lítur alls ekki út fyrir að vera svo slæmur.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×