Körfubolti

Hlynur fór á kostum í sigri Drekanna

Hlynur Bæringsson.
Hlynur Bæringsson. mynd/valli
Íslendingaliðið Sundsvall Dragons náði í kvöld átta stiga forskoti í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik.

Sundsvall lagði þá Jämtland Basket, 108-90, en á sama tíma töpuðu liðin í öðru og þriðja sæti deildarinnar.

Íslendingarnir áttu enn einn stórleikinn í liði Sundsvall. Hlynur Bæringsson var með tröllatvennu en hann skoraði 21 stig og tók 10 fráköst. Hann var þess utan með 73 prósent skotnýtingu og gaf tvær stoðsendingar. Hlynur var stigahæstur Drekanna.

Jakob Örn Sigurðarson einnig mjög öflugur með 16 stig og 4 stoðsendingar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×