Tíska og hönnun

Pönkað haust hjá Westwood

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Fatahönnuðurinn Vivienne Westwood verður seint þekkt fyrir að fara troðnar slóðir í mynstrum og sniðagerð. Sýning hennar á tískuvikunni í London var engin undantekning þar á, en fyrirsæturnar klæddust skemmtilegum mynstrum og fallegum litum á sýningarpöllunum. Línan var greinilega undir miklum áhrifum pönksins, en Westwood segist ekki trúa á tískustrauma sem slíka og segir línur hönnuða einfaldlega endurspegla það sem er þeim hugleikið hverju sinni. Hugur Vivienne Westwood virðist því vera í pönkinu þessa dagana, eins og stundum áður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×