Enski boltinn

Roman vildi ekki mynd af Di Matteo á Stamford Bridge

Di Matteo lyftir hér Meistaradeildarbikarnum.
Di Matteo lyftir hér Meistaradeildarbikarnum.
Þó svo Ítalinn Roberto di Matteo hafi unnið heilaga kaleikinn, Meistaradeildarbikarinn, fyrir Roman Abramovich, eiganda Chelsea, þá er hann ekki hátt skrifaður hjá Rússanum.

Abramovich hefur nefnilega gert sitt til þess að þurrka nafn Di Matteo úr sögunni. Abramovich er nú búinn að láta skipta út mynd af Meistaradeildarsigurvegurum Chelsea á Stamford Bridge.

Di Matteo var með á myndinni sem áður var notuð á vellinum en hann er hvergi sjáanlegur á nýju myndinni.

Di Matteo var rekinn í vetur og Rafa Benitez tók við af honum. Stuðningsmenn Chelsea voru ekki sáttir við þá ákvörðun Rússans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×