Tíska og hönnun

Skilaði rándýrum kjól í tætlum

Leikkonan Lindsay Lohan var í afar glæsilegum kjól á viðburði í New York á vegum amFAR fyrir stuttu. Hún fékk hann lánaðan fyrir rauða dregilinn en skilaði honum í henglum.

Kjóllinn, sem er frá merkinu Theia, var orðinn helmingi styttri þegar pían skilaði honum en hann kostar 1750 dollara, rúmlega 225 þúsund krónur.

Svona leit kjóllinn út í byrjun kvölds.
"Hún sagði að kjóllinn hefði rifnað og að hún gæti ekki klæðst honum þannig. Þá greip vinur hennar, sem er stílisti, til þeirra ráða að biðja útkastara á klúbbnum um skæri til að gera við kjólinn. Lindsay er algjörlega stjórnlaus," segir vinur partípíunnar.

Lindsay er 26 ára. Trúiði því?
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×