Tíska og hönnun

Íslensk fyrirsæta í auglýsingaherferð fyrir bandarískan skórisa

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Íslenska fyrirsætan Sigrún Eva Jónsdóttir situr fyrir í stórri auglýsingaherferð fyrir bandaríska skórisann Steve Madden. Þetta er ekkert smá verkefni, en um er að ræða myndaseríu sem birtist fyrir skömmu á vefverslun skóbúðarinnar, stevemadden.com. Steve Madden er einn farsælasti bandaríski skóhönnuðurinn frá upphafi, en skóveldi hans samanstendur af mörg hundrum búðum í yfir 50 löndum. Sigrún Eva hefur starfað sem fyrirsæta við góðan orðstír síðustu ár og er nú búsett í New York. Hún hefur meðal annars verið mynduð fyrir tískutímaritið Cosmopolitan og sænsku verslunarkeðjuna H&M svo nokkur dæmi séu tekin.

Sigrún Eva Jónsdóttir.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×