Tíska og hönnun

Stjörnufans á strætum Parísar

Eins og glöggir hafa tekið eftir stendur tískuvikan í París nú yfir. Að því tilefni er allt helsta áhrifafólk í heimi tískunnar, ásamt vel klæddum tískudrósum, saman komið í frönsku höfuðborginni um þessar mundir. Það getur verið mjög skemmtilegt að fylgjast með stjörnunum á fremsta bekk, en þær eru oftast hver annarri betur klæddar. Hér eru nokkrir heimsþekktir einstaklingar sem njóta lífsins í París þessa dagana.

Amanda Seyfried mætti dökkklædd á sýningu Givenchy.
Nicole Richie er alltaf flott. Hér er hún einnig á sýningu Givenchy.
Marion Cotillard mætti í einföldu dressi á Christian Dior sýningu.
Anna Wintour lét sig ekki vanta á sýningu hjá Lanvin.
Jessica Chastain var töffaraleg í dragt við sama tilefni.
Jessica Alba leit vel út á sýningu hjá Stellu McCartney.
Tískudrósin Olivia Palermo mætti á sýningu Dior klædd í kjól úr sumarlínu tískuhússins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×