Tíska og hönnun

Af sýningarpöllunum á rauða dregilinn

Það er alltaf gaman að fylgjast með kjólunum á hátískuvikunum sem eru hver öðrum guðdómlegri. Hávaxnar fyrirsætur storma niður sýningarpallana og leggja sitt að mörkum til að láta flíkurnar virka sem fallegastar fyrir augað. Margir þessara kjóla rata svo fljótlega á rauðu dreglana í Hollywood, og það er spennandi að sjá hvort töfrarnir halda sér þar. Hér eru nokkrar frægar leikkonur í kjólum beint af sýningarpöllunum.

Amy Adams var gullfalleg í þessum kjól frá Oscar de la Renta í Óskarseftirpartýi.
Norah Jones klæddist þessum fallega kjól frá Romana Keveza þegar hún kom fram á Óskarnum.
Catherine Zeta - Jones var algjör bomba í þessum kjól frá Zuhair Murad.
Jennifer Aniston í rauðum kjól frá Valentino.
Jennifer Lawrence í Dior.
Kate Bosworth í kjól frá Giambattista Valli sem klæddi hana einstaklega vel.
Ginnifer Goodwin í bláum og glansandi kjól frá Monique Lhuillier.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×