Tíska og hönnun

TREND – Magabolir

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Stuttir magabolir eru tískustraumur sem hefur óvænt náð að festa sig í sessi síðustu mánuði. Bolirnir eru mjög í anda tíunda áratugarins, en tíska í þeim anda hefur verið mjög áberandi og kemur með okkur inn í vorið. Nýjasta útfærlsan á trendinu er nokkurskonar magaboladragt, en þá er bolurinn paraður saman við pils eða buxur í stíl. Hér sjáum við nokkrar vel klæddar dömur í magabolum við hin ýmsu tilefni.

Nicole Richie smart í magabol við hnésítt pils.
Miley Cyrus vakti mikla athygli þegar hún mætti í þessu dressi á tískusýningu hjá Marc Jacobs.
Ashley Tisdale í magabol á rauða dreglinum.
Vanessa Hudgens dömuleg í hvítu.
Alicia Keys var mjög smart í rauðu pilsi og magabol í stíl.
Rihanna glæsileg, einnig í magabol og pilsi í stíl.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×