Sport

Loftbelgurinn klessti á rafmagnslínur

Stallworth spilaði lítið fyrir Patriots í vetur.
Stallworth spilaði lítið fyrir Patriots í vetur.
NFL-leikmaðurinn Donte Stallworth lenti í skelfilegri lífsreynslu um helgina er loftbelgsferð hans og kærustunnar endaði á skelfilegan hátt.

Loftbelgurinn klessti á rafmagnslínur með skelfilegum afleiðingum. Stallworth var fluttur á spítala með slæm brunasár en mun jafna sig.

"Hann verður í lagi. Brunasárin eru slæm en hann mun ná sér góðum. Hann mun geta haldið áfram að spila í NFL-deildinni," sagði Drew Rosenhaus, umboðsmaður Stallworth, en leikmaðurinn er án félags í augnablikinu.

Rosenhaus minntist ekkert á heilsu kærustu Stallworth en þriðji maðurinn í lofbelgnum slapp ómeiddur.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×