Tíska og hönnun

Hönnunarverðlaun Fhi afhent í fyrsta sinn

Ellý Ármanns skrifar
Myndir/Kristín Bogadóttir
Meðfylgjandi myndir voru teknar á Kjarvalsstöðum í gær þegar Hönnunarverðlaun Félags húsgagna- og innanhússarkitekta voru afhent í fyrsta sinn við hátíðlegt tækifæri. Verðlaunaflokkarnir voru; Heimili, Þjónusta, Afþreying og Húsgögn.

Í flokknum Heimili sigraði Rut Káradóttir fyrir lausn hennar á innrettingum í einbýlishúsi frá árinu 1967 í grónu hverfi í Reykjavík. Guðrún Margrét Ólafsdóttir og Oddgeir Þórðarson (goform) fengu hönnunarverðlaun í flokknum Þjónusta. En innanhússhönnun þeirra á húsnæði Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins var að áliti dómnefndar vel heppnuð og heildstæð.

Hér má skoða allar myndirnar.

Í flokknum Afþreying sigraði Emma J. Axelsdóttir fyrir hönnun innréttinga í Casa. Aria borðlína eftir hönnuðinn Sturla Már Jónsson sigraði í flokknum Húsgögn.

Í dómnefnd sátu Elísabet V. Ingvarsdóttir, innanhússarkitekt og hönnunarsagnfræðingur, Birgir Þröstur Jóhannsson, arkitekt og Þórey Vilhjámsdóttir, frv. framkvæmdarstjóri Hönnunar- miðstöðvarinnar, sem fulltrúi neytendanna.

Hér má skoða fleiri myndir:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.