Sport

Bati RG3 er eins og hjá ofurhetju

RG3.
RG3.
Bæklunarskurðlæknirinn sem skar Robert Griffin III, leikstjórnanda Washington Redskins, upp er nánast orðlaus yfir batanum sem RG3 er að ná.

Dr. James Andrews skar RG3 upp þann 9. janúar en liðbönd í hné voru mjög illa farin. Svo illa að óttast var að hann gæti ekki spilað næsta vetur.

"Ég hef ekki viljað tjá mig of mikið þar sem hann vill halda stöðu mála út af fyrir sig. Ég get samt sagt ykkur að hann er langt á undan áætlun. Bati hans hefur hreinlega verið ótrúlegur," sagðu Andrews og bætti við.

"RG3 er einn af þessum ofurhetju einstaklingum. Fyrsti sjúklingurinn sem ég fékk og var þannig var Bo Jackson. Adrian Peterson er líka í þessum flokki. Þessir menn geta náð ótrúlegum bata sem venjulegt fólk getur ekki látið sig dreyma um að ná."

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×