Erlent

Raunveruleg ógn af hendi Norður-Kóreu

Frá fundi varnarmálaráðherra Suður-Kóreu og Bandaríkjanna í gær.
Frá fundi varnarmálaráðherra Suður-Kóreu og Bandaríkjanna í gær. Nordicphotos/Getty
Bandaríkin ætla að senda háþróað eldflaugavarnarkerfi til eyjarinnar Gvam í Kyrrahafi vegna yfirvofandi ógnar af hendi Norður-Kóreu.

Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna skipuðu fyrir um flutninginn í dag þar sem um „augljósa og raunverulega" hættu sé að ræða frá Pyongyang, höfuðborg Norður-Kóreu. Auk Bandaríkjanna standi Suður-Kóreu og Japan mikil hætta af Norður-Kóreu.

Flutningur eldflauganna til herstöðvarinnar á Gvam gefur glögglega til kynna að yfirvöld vestanhafs telja að meiri alvara sé á ferðum en áður. Það þykir einnig benda til þess að þeir reikni með að baráttan geti staðið yfir í langan tíma samkvæmt frétt Guardian.

Eldflaugavarnarkerfið (e. The Terminal High Altitude Area Defense System) á að verja bandarískar herstöðvar fyrir mögulegum árásum eldflauga af hendi Norður-Kóreu. Í gegnum árin hafa Norður-Kóreumenn oftar en einu sinni varað við árásum á Gvam, Hawaii og vesturströnd Bandaríkjanna.

Upphaflega átti ekki að nota eldflaugavarnarkerfið fyrr en árið 2015 en nú er talið að það verði klárt til notkunar innan nokkurra vikna. Kostnaður við kerfið er talinn vera um 800 milljónir bandaríkjadala eða nærri 100 milljörðum íslenskra króna.

Reuters greinir frá því að stjórnvöld í Norður-Kóreu hafi í dag lokað fyrir aðgang að sameiginlegu iðnaðarsvæði Suður- og Norður-Kóreu. Með athæfi sínu hafi þeir sett í uppnám viðskipti jafnvirði 250 milljarða íslenskra króna sem séu afar mikilvæg fyrir þjóð með risaher, stöðuga kjarnorkuþróun og hungursvelta þegna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×