Sport

Tebow ekki að fara á taugum

vísir/getty
Framtíð leikstjórnandans Tim Tebow er enn óráðin og hann er sem fyrr samningsbundinn NY Jets þó svo hann virðist ekki eiga neina framtíð fyrir sér hjá félaginu.

Tebow er ekki mikið fyrir að vera neikvæður og hann segist ætla að mæta til æfinga á mánudag með jákvæðnina að vopni.

Félagið hefur bætt við sig leikstjórnandanum David Garrard og þrátt fyrir að hafa verið orðaður við önnur lið hefur ekkert orðið af vistaskiptum Tebow.

"Þetta eru hlutir sem ég ræð ekki við og ég nenni ekki að velta mér upp úr hlutum sem eru ekki í minum höndum. Ég reyni að vera jákvæður og leggja mig allan fram sem fyrr," sagði Guðsmaðurinn Tebow.



NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×