Körfubolti

Helena ber fánann í beinni frá Lúxemborg

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Fésbókarsíða Helenu

Körfuknattleikskonan Helena Sverrisdóttir verður fánaberi Íslands á setningarathöfn 15. Smáþjóðaleikanna sem fram fer í Lúxemborg í kvöld.

Keppni á leikunum hefst í fyrramálið en 125 íslenskir íþróttamenn munu keppa fyrir hönd lands og þjóðar næstu daga. Leikunum verður slitið á laugardaginn þegar lokaathöfnin fer fram.

Sýnt verður beint frá setningarhátíðinni á heimasíðu keppninnar en athöfnin á Josy Barthel vellinum hefst klukkan 18.

Smellið hér til að fara á heimasíðu leikanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×