Sport

NFL-stjarna kjálkabraut öryggisvörð

Maurice Jones-Drew.
Maurice Jones-Drew.

Maurice Jones-Drew, hlaupari Jacksonville Jaguars í NFL-deildinni, er ekki í góðum málum en hann á að hafa lamið öryggisvörð á veitingahúsi um síðustu helgi.

Ekki er enn búið að kæra Jones-Drew en lögmaður öryggisvarðarins er byrjaður að tjá sig um málið og kæra er líklega á leiðinni.

"Þegar Jones-Drew réðst á skjólstæðing minn var hann að vernda stúlkur frá ágangi vina Jones-Drew. Skjólstæðingur minn kjálkabrotnaði ásamt öðru. Varð að leggja hann inn á spítala en hann er núna kominn heim þar sem hann þarf tíma til að jafna sig," sagði lögmaðurinn.

"Allir hlutlausir menn sem hafa séð myndband af þessari árás sjá að árásin er tilefnislaus með öllu. Jones-Drew hljóp síðan í burtu."

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×