Tíska og hönnun

Íslendingar eru smekklegir - það er bara þannig

Ellý Ármanns skrifar
Lífið gerði sér ferð á Laugaveginn í Reykjavík og myndaði unga og eldra fólkið í bak og fyrir. Eins og sjá má eru Íslendingar ávallt smekklegir sama hvar og hvenær.

María Birta og Kolfinna eru flott par. María er klædd í leðurbuxur og Kolfinna í fallegan loðfeld.
Þessi ungi herramaður var til í að láta mynda sig. Hann var gríðarlega smart í ljósum gallabuxum við svartan jakka.
Þessar vinkonur voru báðar klæddar í svartar buxur. Takið eftir blómaskreyttri yfirhöfn sem gerir heildarútlitið skemmtilegt.
Svartur alklæðnaður, hárið tekið aftur og mokkalituð yfirhöfn. Klassík.
Hér er aftur svartur alklæðnaður og bleikur jakki. Gleraugun toppa heildarútlitið svo sannarlega. Hálsmenið er flottur fylgihlutur.
Brún stígvelin eru smart við gallabuxurnar. Grár jakkinn og bleikur klútur smellpassa við.
Strigaskórnir, gallabuxurnar og látlaus yfirhöfn yfir svarta peysu er fullkomin samsetning á fallegri snót.
Röndóttur fatnaður er vinsæll en hér er má sjá fullkomna samsetningu - vínrauðar buxur og stutterma röndóttur bolur.
Sjá fleiri myndir ef smellt er á efstu mynd í frétt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×