Uppselt á Hátíð vonar - Þjóðkirkjan biðst afsökunar Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 9. ágúst 2013 00:16 Graham er meðal annars þekktur fyrir andstöðu sína gegn samkynhneigðum.
Uppselt er á báðar samkomur predikarans Franklin Graham í Laugardalshöll, en hann kemur fram í september á Hátíð vonar, samstarfsverkefni kristinna samtaka, safnaða, sókna og kirkna, sjálfboðaliða og kristniboðssamtaka. Graham er meðal annars þekktur fyrir andstöðu sína gegn samkynhneigðum, og pantaði fjöldi Íslendinga sér miða á samkomurnar í dag með það í huga að mæta ekki á þær. Ókeypis er á samkomurnar en miða verður að panta fyrirfram. Nú er hins vegar ljóst að allir miðar eru upppantaðir. Þjóðkirkjan birti yfirlýsingu á vefsíðu sinni í kvöld þar sem beðist er afsökunar á því að birt hafi verið tilkynning um hátíðina. Þjóðkirkjan stendur ekki að viðburðinum en fyrr í vikunni birtist tilkynning um hann á vefnum Kirkjan.is, sem nú hefur verið fjarlægð. „Það var ekki ætlunin með birtingu hennar að varpa neinum skugga á Hinsegin daga eða taka undir orð Franklin Graham um samkynhneigða og hjónaband þeirra. Við biðjumst afsökunar á þessu. Um leið viljum við ítreka að þjóðkirkjan hvikar hvergi frá samstöðu sinni með samkynhneigðum, réttindabaráttu þeirra og hjónabandi samkynhneigðra,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Vaktin: Bílaplanið þakið hrauni Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Innlent Telur Bláa lónið öruggt vegna varnargarðanna Innlent Endalok goshrinunnar teygist inn á mitt næsta ár Innlent „Þetta var bara besta stund kosningabaráttunnar til þessa“ Innlent „Ég ætla ekki að vera föst á þessum Klausturbar“ Innlent Funda áfram hjá sáttasemjara á morgun Innlent Fleiri fréttir Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Funda áfram hjá sáttasemjara á morgun „Fólki er frekar misboðið“ Gosið gætið varað í nokkrar vikur Endalok goshrinunnar teygist inn á mitt næsta ár Bílaplan á bólakafi, könnun og frambjóðanda misboðið Höfðu ekki áhyggjur af lóninu sjálfu Skilorðsbundinn dómur yfir strætóbílstjóra staðfestur Veit ekki hver getur tekið við gögnunum Refsing Jaguars þyngd verulega Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur takist á í bergmálshelli Samið um sjálfstæða leikskóla í Reykjavík Vilja byggja vísindasetur fyrir almenning í Háskólabíói Útlit fyrir að varnir Bláa lónsins haldi Hart tekist á um fyrirætlanir Heidelberg í Þorlákshöfn Bein útsending: Hver er sýn flokkanna á lífskjör eldra fólks? Verkföll boðuð í fjórum grunnskólum í janúar „Þetta var bara besta stund kosningabaráttunnar til þessa“ Komust langt að gosinu því það gleymdist að loka veginum Nýsköpun eða „rándýr aðgangur“?: 300.000 króna heilskimun aftur á boðstólnum Telur Bláa lónið öruggt vegna varnargarðanna Káfaði á konu á salerni skemmtistaðar Segir komið fram við sig eins og glæpamann fyrir að vilja vera heima í Grindavík „Ekki rólegur með hraunið ofan á“ Samfylkingin bætir við sig í fyrsta sinn síðan í maí og Píratar úti Varar við sprengjum á svæðinu við gosstöðvarnar Glóðvolg könnun og hraun rennur enn á ný Gandri fær grænt ljós Magnaðar myndir sýna Grindavíkurveg undir hrauni Sjá meira