Erlent

Lífstíðarfangelsi fyrir að valda dauða sonar síns

Þorgils Jónsson skrifar
Magdalena Luczak og Mariusz Krezolek beittu Daniel Pelka ólýsanlegu ofbeldi sem leiddi til dauða hans í fyrra.
Magdalena Luczak og Mariusz Krezolek beittu Daniel Pelka ólýsanlegu ofbeldi sem leiddi til dauða hans í fyrra.
Móðir og stjúpfaðir Daniels Pelka, fjögurra ára bresks drengs sem lést af völdum höfuðhöggs á síðasta ári eftir langvarandi ofbeldi, voru í dag dæmd til lífstíðarfangelsisvistar. Þau eiga rétt á reynslulausn eftir 30 ár hið minnsta.

Málið hefur vakið mikla athygli í Bretlandi, enda eru lýsingarnar á meðferðinni sem Daniel mátti sæta af höndum móður sinnar, Magdalenu Luczak, og stjúpföður sínum, Mariusz Krezolek, sláandi svo ekki sé meira sagt.

Daniel Pelka var fjögurra ára þegar hann lést af völdum höfuðáverka, einn og yfirgefinn í óupplýstu herbergi. Lögregla og félagsmálayfirvöld þykja hafa brugðist skyldum sínum með aðgerðarleysi og leyfa þannig ofbeldinu að halda áfram um langt skeið.
Drengurinn var sveltur kerfisbundið, laminn, kaffærður í baðkari, neyddur til að borða salt, neitað um að fara á salerni og oft lokaður aleinn inni í myrkvuðu herbergi, en við slíkar aðstæður lést hann einmitt í mars á síðasta ári. Þá var hann álíka þungur og átján mánaða gamalt barn og um það bil 30 áverkar eftir ofbeldi var að finna á líkama hans. Þau neituðu bæði sök og bentu á hvort annað

Í fréttum í bresku miðlunum kemur meðal annars fram að systkini hans hafi ástundað það að stinga mat undan til að færa bróður sínum.

Dómarinn í málinu sagði sakborningana ekki hafa sér neitt til málsbóta. Ofbeldið hafi verið úthugsað yfir langan tíma og harðræðið og grimmdin sem þau hafi beitt hafi verið óskiljanlegt.  

Málið gæti enn dregið dilk á eftir sér þar sem nú stendur yfir úttekt á viðbrögðum lögreglu, félagsyfirvalda og skóla í heimaborg hans, Coventry. 

Kerfið þykir hafa brugðist Daniel með því að bregðast ekki við fjölmörgum vísbendingum um hvað hann mætti þola, en Luczak og Krezolek náðu yfirleitt að ljúga sig út úr aðfinnslum með vef lyga. Meðal annars sögðu þau að ástæða þess að hann væri svo horaður og reyndi að leita sér matar í ruslakörfum í skólanum væri sjaldgæf átröskun og ekki mætti gefa honum að borða undir nokkrum kringumstæðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×