"Ekki hægt að halda HM í Katar að sumri til“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. ágúst 2013 18:30 Sepp Blatter tilkynnir að HM 2022 fari fram í Katar. Nordicphotos/Getty
Greg Dyke, formaður enska knattspyrnusambandsins, segist harður stuðningsmaður þess að halda þurfi heimsmeistaramótið í knattspyrnu árið 2022 utan Katar eða utan sumartímans. Hitastigið í Katar er í kringum 40°C yfir sumarið og hefur Alþjóðaknattspyrnusambandið tilkynnt að verið sé að skoða hvort halda eigi keppnina að hausti til, vetri eða að vori. Vangaveltum FIFA hefur verið tekið misjafnlega. Forsvarsmenn ensku úrvalsdeildarinnar eru ekki sáttir enda myndi það hafa mikil áhrif á gang mála í úrvalsdeildinni færi stórmótið fram á sama tíma og deildarkeppnin stendur yfir. „Það er ekki hægt að halda keppnina að sumri til þannig að tveir möguleikar eru í boði. Annaðhvort þarf að halda keppnina annars staðar eða á öðrum tíma ársins," sagði Dyke í samtali við BBC. Katar vann atkvæðagreiðsluna um HM 2022 eftir baráttu við Suður-Kóreu, Japan, Ástralíu og Bandaríkin. Ákvörðun FIFA að veita Katar keppnina var harðlega gagnrýnd og talið að um spillingu væri að ræða. Enginn fótur virðist þó vera fyrir þeim ásökunum. Dyke segir sérstakt að FIFA hafi ekki velt hitavandamálinu fyrir sér fyrr en nú. Jafnvel þótt leikvangarnir verði loftkældir þurfi að hugsa um allan þann fjölda áhorfenda sem mætir í hitann mikla í Katar. „FIFA tekur auðvitað ákvörðunina sem verður alltaf erfið. Allir sem starfa í knattspyrnuheiminum gera sér grein fyrir að keppnin getur ekki farið fram að sumri til í Katar. Það hefur hins vegar tekið langan tíma að fá umræðuna um það í gang."
Fótbolti Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Körfubolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Fótbolti Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti HK gaf leik gegn Herði: „Ekki nýtt vandamál fyrir okkur á landsbyggðinni“ Handbolti Carragher segir Salah vera eigingjarnan Enski boltinn Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Enski boltinn Þjálfari FH með hljóðnema á sér: „Massa reynsla hérna í bland við massa greddu“ Handbolti Fleiri fréttir Hvorki Arnar né Freyr heyrt frá KSÍ Kæra framleiðendur Lionel Messi drykkjarins fyrir stuld Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Aðeins Heimir og Lagerbäck með betri árangur á öldinni „Fann brosið mitt á ný“ Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Carragher segir Salah vera eigingjarnan Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Sjá meira