Körfubolti

Deildarmeistaranir steinlágu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Valli
Sundsvall Dragons tpaaði með 33 stiga mun fyrir Uppsala á heimavelli í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Sundsvall tryggði sér deildarmeistaratitilinn fyrir helgi og hafði því ekki að miklu að keppa í kvöld.

Hlynur Bæringsson var stigahæstur í liði Sundsvall og skoraði 22 stig auk þess að taka fimm fráköst og gefa tvær stoðsendingar. Jakob Sigurðarson skoraði ellefu stig og gaf fimm stoðsendingar.

Sundsvall er með 52 stig á topppi deildarinnar en Uppsala í öðru sæti með 48 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×