Sport

Fagnaðarlætin fóru úr böndunum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Liðið fagnar hér sigrinum.
Liðið fagnar hér sigrinum. mYnd / getty images
Enska landsliðið í krikket hefur nú þurft að senda frá sér afsökunarbeiðni eftir að allt fór úr böndunum í fagnaðarlátum liðsins er Englendingar tryggðu sér sigur á „The Ashes“ gegn Áströlum á sunnudaginn.

Leikmenn liðsins fögnuðu á vellinum langt fram á nótt og köstuðu ítrekað af sér vatni á miðjan völlinn.

Í yfirlýsingunni frá enska krikket-sambandinu segir meðal annars:

„Við gleymdum okkur í fagnaðarlátunum og gerum okkur grein fyrir því að hegðun leikmannanna var til skammar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×