Sport

Fall á lyfjaprófi setti Gróttufólk í verðlaunasæti

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Aron og Fanney (til vinstri á hægri myndinni).
Aron og Fanney (til vinstri á hægri myndinni). Mynd/Samsett
Aron Teitsson og Fanney Hauksdóttir úr Gróttu fengu óvænt bronsverðlaun á heimsmeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum og bekkpressu í Rússlandi.

Aron og Fanney höfnuðu í fjórða sæti í flokkum sínum á mótinu sem fram fór fyrr í sumar. Aron í klassískum kraftlyftingum en Fanney í bekkpressu. Nú nokkrum vikum síðar kom í ljós að sigurvegarar beggja flokka féllu á lyfjaprófi. Íslensku keppendurnir færðust því upp um eitt sæti og fengu síðbúin bronsverðlaun sín á dögunum.

„Þetta er glæsilegur árangur hjá þessu frábæra keppnisfólki, en leitt að þau hafi ekki fengið að njóta þess að stíga á verðlaunapallinn á sjálfu mótinu,“ segir í frétt á heimasíðu Gróttu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×