Sport

Viðurkennir að hafa stefnt lífi annarra í hættu

Greg Little.
Greg Little.
NFL-leikmaðurinn Greg Little má þakka fyrir að vera lifandi eftir að hafa sloppið á ótrúlegan hátt úr bílslysi.

Hann var að spyrna við félaga sinn og báðir keyrðu þeir á rúmlega 200 km/h. Þá klessti Little bílinn sinn sem aldrei verður keyrður aftur. Hann slapp svo vel að hann gat flúið af vettvangi en það dugði skammt.

Hann var svo aftur tekinn fyrir of hraðan akstur skömmu síðar.

"Ég verð að taka þetta alvarlega og fara að hægja á mér. Ég hefði getað drepið sjálfan mig svo stefndi ég lífi annarra í hættu," sagði Little.

Hann á mæta fyrir rétt í byrjun næsta mánaðar. Hann þarf líklega að taka leigubíl þangað.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×