"Bara þetta venjulega íslenska leiðindaveður“ 4. mars 2013 13:55 „
Þetta er bara þetta venjulega íslenska leiðindaveður," segir Einar Þór Strand, formaður Björgunarsveitarinnar Berserkir á Stykkishólmi. „Það var bara kominn tími á þetta." Ekkert ferðaveður er á norðan- og vestanverðu landinu. Á Vesturlandi er hálka víða og sumstaðar él eða skafrenningur. Þrátt fyrir að veður sé slæmt hafa björgunarsveitir og lögregla á Stykkishólmi ekki þurft að sinna mörgum útköllum það sem af er degi. Í nótt voru Berserkir kallaðir til þegar flotbryggja losnaði að hluta til. Nokkrir bátar voru tjóðraðir við bryggjuna. „Þetta var á þriðja tímanum í nótt," segir Einar Þór. „Við náðum í þá sem áttu þessa báta og fengum þá til að færa þá." Einar Þór bendir á að lítil hætta hafi myndast þegar bryggjan losnaði. „Bryggjan er að hluta til föst en hún veldur litlu tjóni núna. Það er einn bátur enn tjóðraður við hana en við náum í hann þegar veðrið gengur niður. Við náðum að losa stóru bátana í nótt svo hættan er lítil." Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Stykkishólmi hafa útköll verið fá. „Í raun frekar rólegt miðað við veður," sagði varðstjóri í samtali við Vísi. Veðurstofa varar við slæmu ferðaveðri á Vestfjörðum. Ófært er um Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum og Klettshálsi. Hálka og skafrenningur er á Mikladal og Hálfdán, hið sama má segja um Kleifaheiði og þungfært er í Ísafjarðardjúpi.
Mest lesið Krefjast upptöku á aragrúa gullmuna í fíkniefnamáli tvíbura Innlent Sjálfstæðismenn orðnir eins og vinstrimenn Innlent Útilokar ekki að beita hervaldi til að ná Grænlandi Erlent Framtíð Grænlands ráðist í Grænlandi Innlent Krefji Eddu um margfalt hærri upphæð en eðlilegt sé Innlent Hafi þurft að þola ómannúðlega meðferð sem dró hann til dauða Innlent „Hann kom víða við og snerti marga“ Innlent Fimm sækjast eftir embætti Landlæknis Innlent Götulokanir á Akureyri vegna tilfærslu sprengjunnar Innlent Geta loksins kvatt drenginn sinn heima á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðismenn orðnir eins og vinstrimenn Krefjast upptöku á aragrúa gullmuna í fíkniefnamáli tvíbura Framtíð Grænlands ráðist í Grænlandi Götulokanir á Akureyri vegna tilfærslu sprengjunnar Hafi þurft að þola ómannúðlega meðferð sem dró hann til dauða Stefnir ríkinu vegna plastbarkamálsins „Hann kom víða við og snerti marga“ Fimm sækjast eftir embætti Landlæknis „Þetta er sannarlega mikill heiður“ Innri endurskoðun tekur ferlíkið við Álfabakka fyrir Bjarni misst stuðning úr sínum kjarnahópi Krefji Eddu um margfalt hærri upphæð en eðlilegt sé Guðmundur Ari þingflokksformaður og Dagur kemst ekki á blað Togari kom með sprengju til hafnar á Akureyri Formannsslagur í uppsiglingu eftir brotthvarf Bjarna Fjögur hundruð milljónir fara „dönsku leiðina“ í Úkraínu Hyggst leggja til rammaáætlun á vorþinginu Segir brotthvarf Bjarna breyta pólitíska landslaginu Orkumálin verði ofarlega á lista ríkisstjórnarinnar Þorgerður Katrín í Úkraínu Geta loksins kvatt drenginn sinn heima á Íslandi Kennari fékk ekki að bregðast við slæmum umsögnum í ráðningarferli „Græna gímaldið“ minni helst á braggamálið og ábyrgðin liggi hjá borgarstjóra Farið yfir feril Bjarna: Spáði því að hann ætti nóg eftir fyrir átján árum Eldur í sjö ruslagámum á einum sólarhring Eldur í bifreið og útihúsgögnum Ýmsar ívilnanir til handa læknum á landsbyggðinni í skoðun Eldur í „flugeldagámi“ við Klambratún Má heita Amína en ekki Hó Aldrei verið skráð fleiri manndrápsmál Sjá meira