Tíska og hönnun

Harper Beckham heillar á tískusýningu í New York

Marín Manda skrifar
Falleg feðgin.
Falleg feðgin.
Harper Beckham lætur sig ekki vanta á tískusýningarnar í New York rétt eins og foreldrarnir, þrátt fyrir ungan aldur. 

Það má vera að Anna Wintour, riststjóri bandaríska Vogue sé hörkukvendi  sem gjarnan er líkt við hlutverk Meryl Streep í The devil wears Prada, en hin tveggja ára Harper Beckham hræðist hana ekki.

Harper Beckham ásamt föður sínum, David Beckham og Anna Wintour ritstjóra bandaríska Vogue.
Harper, sem er dóttir stjörnu parsins Victoríu og David Beckham var með föður sínum í New York í gær á tískusýningu móður sinnar. Wintour sat að sjálfsögðu á fremsta bekk við hliðina á Beckham feðginunum og virtist vera heilluð af litlu dömunni en hún brosti og spjallaði við Harper af miklum áhuga.

Íklædd fallegum hvítum kjól er ekki að undra að Harper hafi stolið athyglinni  á sýningu móður sinnar enda ekki skrítið þegar maður er einungis tveggja ára snotur snáta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×