Sport

Ballið byrjar í badmintoninu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Atli Jóhannesson verður í eldlínunni í kvöld.
Atli Jóhannesson verður í eldlínunni í kvöld. Mynd/Heimasíða TBR
Badmintonfólk landsins hefur keppni á einliðaleiksmóti TBR í kvöld. Mótið markar upphaf keppnistímabilsins og er það fyrsta í mótaröð Badmintonsambandsins.

Aðeins er keppt í einliðaleik í meistaraflokki á mótinu. Atli Jóhannesson úr TBR er raðað númer eitt í mótið í karlaflokki en í kvennaflokki er það Margrét Jóhannsdóttir úr TBR sem er röðuð númer eitt. Sextán keppendur eru í karlaflokki og átta í kvennaflokki.

Töluverð endurnýjun hefur verið í karlaflokki og lagði Helgi Jóhannesson meðal annars spaðann á hilluna að loknu síðasta keppnistímabili. Rakel Jóhannesdóttir, sem hafnaði í efsta sæti styrkleikalistans í vor, er ekki á meðal keppenda á mótinu.

Niðurröðun og tímasetningar má finna hér að neðan.

Meistaraflokkur karla.

Meistaraflokkur kvenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×