Sport

Tom Brady vill meira frá liðinu þrátt fyrir taplausa byrjun

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tom Brady í nótt.
Tom Brady í nótt. mynd / getty images
Leikstjórnandinn Tom Brady vill meina að New England Patriots hafi nóg svigrúm til að bæta sig.

Liðið vann nauman sigur á New York Jets 13-10 í gærkvöld og hafa unnið alla sína leiki á tímabilinu í NFL-deildinni í Bandaríkjunumm.

„Ég er sáttur með sigurinn en við þurfum að laga nokkra hluti,“ sagði Brady á blaðamannafundi eftir leikinn í nótt.

„Á síðasta tímabili töpuðum við einum leik í upphafi tímabilsins en enduðum á því að eiga frábært tímabil. Ég vill samt sem áður að liðið bæti sóknarleikinn til muna og þá verða allir að hjálpast að.“

The Patriots mætir Tampa Bay Buccaneers í næstu viku.



NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×