Sport

Reyndi að bjarga pítsu og lenti í árekstri

Nate Burleson.
Nate Burleson.
Það á ekki af Nate Burleson, leikmanni Detroit Lions í NFL-deildinni, að ganga. Hann missti af tíu leikjum í fyrra vegna fótbrots og nú er hann aftur alvarlega meiddur.

Burleson handleggsbrotnaði mjög illa í gær og mun þurfa að fara í aðgerð vegna meiðslanna. Hann verður því frá í einhverjar vikur.

Áreksturinn er þó afar neyðarlegur fyrir Burleson. Hann var ekki undir áhrifum áfengis eða vímuefna. Hann var alls gáður.

Hann var aftur á móti að keyra með pítsu í bílnum og hann missti stjórn á bílnum er hann reyndi að bjarga bökunni frá því að falla úr farþegasætinu.

Pítsan reyndist því talsvert dýr fyrir Burleson er upp var staðið. Einnig fyrir Lions en Burleson átti frábæran leik um síðustu helgi.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×