Mál lögreglumannsins sem ákærður er fyrir líkamsárás og brot í starfi á Laugavegi í sumar verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Maðurinn er ákærður fyrir að hafa farið offari og ekki gætt lögmætra aðferða við handtöku á konu á þrítugsaldri. Í ákæru kemur fram að hann hafi rykkt án fyrirvara í hægri handlegg konunnar þannig að hún féll með bakhlutann á bekkarm og þaðan í götuna.
Ákærði hafi síðan dregið hana stuttan spöl eftir götunni, sett vinstra hné á bak hennar, hægra hné á hnakka hennar og handjárnað hana án þess að aðstæður krefðust þess. Hann hafi auk þess sett konuna á magann með höfuðið á undan inn í lögreglubifreið, að því er segir í ákærunni.
Konan hlaut mar á hægri upphandlegg, mar á hægri mjaðmakamb, mar utanvert á hægra hné, bólgu á hægra augnloki og mar yfir hægra kinnbein.
Ríkissaksóknari krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.
Konan krefst 1,5 milljóna króna í skaða- og miskabætur.
Krefst 1,5 milljóna króna í miskabætur vegna harkalegrar handtöku
Tengdar fréttir
Harkaleg handtaka í miðborginni vekur athygli
Myndband af íslenskum lögreglumönnum í miðborginni um helgina hefur vakið mikla athygli á Facebook í kvöld.
Fumlaus handtaka
Mjög ofarlega í umræðunni í dag er handtaka lögreglumanns sem náðist á myndband. Umræðan er mjög á einn veg og orð eins og „ótrúlega harkaleg handtaka“ verið notuð.