Fótbolti

Hörður Björgvin spilar og Spezia vinnur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hörður Björgvin ásamt liðsfélögum sínum.
Hörður Björgvin ásamt liðsfélögum sínum. Mynd/Fésbókarsíða Spezia
Hörður Björgvin Magnússon var annan leikinn í röð í byrjunarliði AC Spezia í Serie B í gærkvöldi. Aftur vann liðið sigur.

Spezia vann 2-1 sigur á útivelli með marki á 88. mínútu. Hörður Björgvin spilaði allan leikinn í stöðu vinstri bakvarðar líkt og í síðustu umferð er liðið lagði Palermo 1-0.

Varnarmaðurinn tvítugi virðist vera að stimpla sig inn hjá Spezia eftir að hafa setið á bekknum í fyrstu leikjum tímabilsins. Liðið situr í sjötta sæti með tíu stig eftir sex umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×