Sport

Nektardansmær braut kampavínsflösku á höfði Jones

Jacoby Jones.
Jacoby Jones.
Þetta hefur ekki verið neitt sérstakt tímabil hjá Jacoby Jones, leikmanni Baltimore Ravens í NFL-deildinni. Hann meiddist í fyrsta leik tímabilsins og hefur ekki spilað síðan. Hann lenti svo í öðru óhappi um helgina.

Þá var hann að skemmta sér með nokkrum liðsfélögum sínum en einn þeirra átti afmæli. Þeir voru búnir að taka á leigu svokallaða partírútu og voru einnig nektardansarar um borð.

Jacoby lenti eitthvað saman við nektardansara sem kallar sig Sweet Pea og hún lamdi hann í hausinn með kampavínsflösku. Svo fast að flaskan brotnaði á höfði hans og lak blóð út um allt.

Sjúkrabíll varð að koma á svæðið og var gert að sárum Jones á staðnum. Enginn var þó handtekinn.

Þjálfari Ravens, John Harbaugh, var allt annað en sáttur við leikmenn sína sem fá væntanlega að kenna á því á næstu æfingum.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×