Sport

Murray að jafna sig

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Andy Murray með þumlana á lofti.
Andy Murray með þumlana á lofti. Mynd/Twitter
Skotinn Andy Murray gekkst í gær undir minniháttar aðgerð vegna bakmeiðsla sinna.

Tenniskappinn 26 ára segir að fyrstu orð sín eftir að hann vaknaði að loknum uppskurðinum hafi verið: „Vann ég leikinn?“

Ekki er reiknað með því að Murray taki þátt í fleiri mótum á tímabilinu. Hann stefnir sjálfur á að hefja undirbúning fyrir næsta keppnistímabil í Miami í nóvember.

Bakmeiðsli Murray urðu til þess að hann dró sig út úr Opna franska meistaramótinu í maí. Hann náði þó að jafna sig fyrir Wimbledon í júlí þar sem hann vann frækinn sigur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×