Sport

Skellti húðflúri af heimavellinum á hausinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Twitter
Jose Romero er grjótharður stuðningsmaður Los Angeles Dodgers í bandaríska hafnaboltanum. Ef einhver efast um það ætti hann að bera nýtt útspil kappans augum.

Romero sýndi umheiminum nýtt húðflúr á Twitter-síðu sinni um helgina. Heimavöllur Dodgers í Los Angeles prýðir nú skallann á stuðningsmanninum.

Sem betur fer kemur húðflúrið vel út enda öllum sýnilegt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×