Sport

Hefði labbað út ef mér hefði verið boðið upp á þetta

Richardson hefur alla burði til þess að verða stórstjarna á næstu árum.
Richardson hefur alla burði til þess að verða stórstjarna á næstu árum.
Gríðarlega óvænt félagaskipti urðu í NFL-deildinni í vikunni. Einn efnilegasti leikmaður deildarinnar, hlauparinn Trent Richardson, fór þá frá Cleveland Browns til Indianapolis Colts. Cleveland fékk í staðinn valrétt í fyrstu umferð nýliðavalsins á næsta ári.

Richardson var valinn þriðji í nýliðavalinu í fyrra og átti fínt ár í lélegu liði Browns. Liðið er búið að tapa fyrstu tveim leikjum sínum í vetur og stuðningsmenn félagsins líta svo á að það sé búið að kasta inn hvíta handklæðinu nú þegar.

Mike Holmgren var forseti Cleveland í fyrra en var rekinn í lok tímabilsins. Hann var einnig frábær þjálfari og vann SuperBowl með Green Bay Packers á sínum tíma.

Holmgren segist vart trúa því sem félagið hafi gert.

"Hvernig bætir það liðið að senda frá sér besta leikmann liðsins? Þetta er gríðarlega verðmætur leikmaður," sagði Holmgren hissa.

"Ég hreinlega skil þetta ekki. Ef ég væri þjálfari og félagið mitt gerði svona þá hefði ég farið fram á að vera rekinn. Ef ekki þá hefði ég bara hætt. Ég hefði labbað út."

Þetta eru aftur á móti frábær tíðindi fyrir lið Colts sem er á mikilli uppleið. Andrew Luck var valinn fyrstur í nýliðavalinu í fyrra og hann hefur staðið sig frábærlega.

Hlaupaleikurinn hefur verið hausverkur en með komu Richardson breytist landslagið ansi mikið. Þeir eru þess utan báðir kornungir og eiga framtíðina fyrir sér.



NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×