Sport

Veikindi hafa herjað á íslensku borðtenniskappana

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá vinstri: Magnús, Davíð og Daði ásamt þjálfara sínum, Bjarna Þorgeiri.
Frá vinstri: Magnús, Davíð og Daði ásamt þjálfara sínum, Bjarna Þorgeiri. Mynd/Borðtennissamband Íslands
Karlalandslið Íslands í borðtennis vann í dag 3-2 sigur á Kosovo í leik um sæti á Evrópumeistaramótsins í borðtennis sem fram fer í Vínarborg í Austurríki.

Ísland vann einn af fimm leikjum sínum í riðlinum. Sigurinn kom gegn Aserbaídjan 3-1 en leikirnir gegn Lettum, Sviss, Finnum og Lúxemborg töpuðust allir 3-0. Ísland hafnaði í fimmta sæti af sex þjóðum í riðlinum.

Liðið mætti Kosovo í fyrri leik sínum um sæti 33-36 á mótinu og vann 3-2 sigur. Liðið mætir Kýpur í lokaleiknum síðar í dag um 33. sætið á mótinu.

Lið Íslands er skipað Víkingunum Daða Freyr Guðmundssyni og Magnúsi Kristni Magnússyni og KR-ingnum Davíð Jónssyni. Davíð býr í Slóvakíu þar sem hann lærir til læknis ásamt því að spila í deildarkeppninni þar í landi.

Ekki lá ljóst fyrir fyrr en á síðustu stundu hvort Davíð gæti spilað með liðinu í Vín. Vesturbæingurinn lenti á spítala vegna sýkingu rétt fyrir mót og útlitið svart. Hann náði þó að jafna sig og hélt með lest til Vínar.

Ekki gekk það áfallalaust fyrir sig því lest hans var kyrrsett. Hann skilaði sér þó fyrir rest skömmu fyrir fyrsta leik. Ekki var öll sagan sögð því í kjölfar sigursins á Aserum fékk Daði gubbupest.

Íslenska liðið spilaði í A-riðli í Standard Division. Þjálfari strákanna er Bjarni Þorgeir Bjarnason.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×