Sport

Leikmenn HK semja við Gautaborg United

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Aðsend
Tveir blakmenn úr HK, þeir Alexander Stefánsson og Ingólfur Hilmar Guðjónsson, hafa samið við sænska 1. deildar liðið Göteborg United um að leika með þeim á tímabilinu sem nú er fyrir höndum.  

Félagið er nýtt af nálinni en setur stefnuna á að vinna 1. deildina og tryggja sér sæti í efstu deild.

„Alexander og Ingólfur hafa frá unga aldri æft og spilað saman hjá HK og eru þar fyrir utan góðir félagar. Það er missir af þeim úr okkar röðum en verður jafnframt spennandi að fylgjast með afrekum þeirra á nýjum vettvangi og óskar blakdeild HK þeim alls hins besta,“ segir í tilkynningu frá HK.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×