
Mikilvægt að stöðva skuldasöfnun ríkissjóðs
Bjarni segir að það sé raunhæft markmið að ríkissjóður skili afgangi á næsta ári. „Það kostar auðvitað markvissar aðgerðir. Við förum í tekjuöflunaraðgerðir með því að breikka bankaskattinn en við sköpum um leið svigrúm til þess að lækka aðra skatta á fyrirtæki og fjölskyldur, með lækkun tekjuskatts og lækkun tryggingagjalds. Hallalaus fjárlög eru gríðarlega mikilvæg til þess að stöðva skuldasöfnun ríkissjóðs sem hefur verið gríðarleg undanfarin ár,“ segir Bjarni.
Hægt er að horfa á viðtalið í heild hér að ofan.
Tengdar fréttir

Landspítalinn fær enga innspýtingu - fé til tækjakaupa skorið niður
Tímabundið 600 milljóna króna framlag til spítalans vegna tækjakaupa er fellt niður. Hagræðingarkrafa á spítalann felur í sér hækkun á sértekjum sem verður náð með nýju legugjaldi. Um er að ræða nýtt gjald þar sem sjúklingar greiða 1.200 krónur fyrir hvern sólarhring sem þeir dvelja á Landspítalanum. Með þessu nýja gjaldi er spítalanum reiknaðar um 200 milljónir í sértekjur.

Framlög til lista lækka um 346 milljónir
Framlög íslenska ríkisins til lista lækka um 346,6 milljónir króna á milli ára, að frátöldum launa- og verðlagshækkunum.

Framlög til Kvikmyndamiðstöðvar lækka um 400 milljónir króna
Kvikmyndamiðstöð Íslands fær 735 milljónir króna samkvæmt fjárlagafrumvarpinu en í fjárlögum þessa árs var upphæðin 1,1 milljarður króna.

Stefna á hallalaus fjárlög
Gert er ráð fyrir því að ríkissjóður skili tæplega 500 milljón króna afgangi á næsta ári miðað við fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar sem var kynnt í morgun. Þetta eru fyrstu hallalausu fjárlögin frá hruni.

Barna- og vaxtabætur lækka
Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu er áætlað að barnabætur á næsta ári verði 10.2 milljarðar króna en á í fjárlögum þessa árs voru þær tæpir 10.8 milljarðar króna.

Tóbak og áfengi hækka í verði
Tóbaksgjald og gjald á áfengi verður hækkað, samkvæmt lagabreytingu sem verður lögð fyrir Alþingi í næstu viku.

Heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni sameinaðar
Kristján Már Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni verði sameinaðar. Þetta kemur fram í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2014. Eftir sameiningu stofnana verður ein stofnun í hverju heilbrigðisumdæmi, eins og lög um heilbrigðisþjónustu gera ráð fyrir. Þetta á við um Norðurland, Suðurland og Vestfirði.

Milljónir í eflingu löggæslu
Gert er ráð fyrir 500 milljón króna viðvarandi framlagi til að efla löggæsluna í landinu. Á sama tíma er gert ráð fyrir að 200 milljón króna framlag sem veitt var tímabundið til löggæslumála í fjárlögum 2013 verði fellt niður.

Framkvæmdum við Hús íslenskra fræða hætt
Í fjárlagafrumvarpinu er lagt til að tímabundin fjárheimild, 800 milljónir króna falli niður.

Tekjuskattur lækkar
Skatthlutfallið í miðþrepi tekjuskatts verður lækkað um 0,8 prósentustig samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Skatthlutfallið lækkar úr 25,8% í 25%.

Skólagjöld hækka um 25 prósent
Framlag íslenska ríkisins til Háskóla Íslands á næsta ári lækkar um 321,8 milljónir króna og skólagjöld verða hækkuð úr 60 þúsund krónum í 75 þúsund krónur í öllum ríkisreknum háskólum.

Bleyjuskattur lækkaður
Fæðingarorlof stytt en greiðslur hækkaðar

Hætt við stækkun FSU
Heildarfjárveiting íslenska ríkisins til framhaldsskóla á Íslandi lækkar um rúmlega 1,5 milljarð króna í fjárlögum síðasta árs. Þar af eru almennar launa- og verðlagsbreytingar 645 milljónir króna.

RÚV fær 319 milljónir aukalega - ekki farið fram á hagræðingu
Fjárveiting til Ríkisútvarpsins hækkar um 319 milljónir króna, og verður því heildarframlag ríkisins til RÚV rúmir 3,5 milljarðar króna, samkvæmt fjárlagafrumvarpinu sem kynnt var á Alþingi klukkan fjögur.

100 milljónir til hönnunar sjúkrahótels
Nýr Landspítali er ekki fyrirferðarmikill í nýju frumvarpi til fjárlaga. Til hans eru lagðar 100 milljónir króna til fullnaðarhönnunar á sjúkrahóteli.