Sport

Halldór Helgason í nýrri snjóbrettamynd frá Nike

Stefán Árni Pálsson skrifar
Íþróttavöruframleiðandinn Nike hefur gefið út nýja snjóbrettamynd, Never Not Part 2, en Halldór Helgason er einn aðal snjóbrettakappinn sem kemur við sögu í þessari mynd.

Í myndinni koma fram allir helstu snjóbrettakappar heimsins og sýna þeir oft á tíðum mögnuð tilþrif.

Farið er djúpt ofan í saumana á hversu erfið sum stökk eru og hver hættan er, en menn lenda oft í því að slasa sig töluvert í þessari íþrótta.

Hér að ofan má sjá myndina í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×