Innlent

Síld innan við brú í Kolgrafafirði

Samúel Karl Ólason skrifar
Jóna Eðvalds SH er hér við veiðar í mynni Kolgrafarfjarðar.
Jóna Eðvalds SH er hér við veiðar í mynni Kolgrafarfjarðar. Skjáskot úr myndbandi
Síld er að öllum líkindum farin að ganga undir brúna í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi eins og sést á meðfylgjandi myndbandi sem ljósmyndarinn Tómas Freyr Kristjánsson frá Grundarfirði gerði, svokallað „timelapse“, af náttúrunni í Kolgrafafirði og skipinu Jónu Eðvalds SF að veiða síld í mynni fjarðarins.

Eins og áður hefur verið sagt frá á Vísi hafa bæjaryfirvöld í Grundarfirði sóst eftir því að firðinum verði lokað til að stöðva gengd síldarinnar. Stór uppsjávarskip hafa verið að veiða síld í mynni fjarðarins og á svæðinu. Þegar síldin fer undir brúna geta þessu stóru skip ekki komist að henni. Smábátar geta þó á fjöru farið undir brúna, en margir slíkir eru nú á síldveiðum við norðanvert Snæfellsnes.

Glöggir áhorfendur myndbandsins geta séð eftir tvær mínútur að dökkur flekkur færist frá hægri til vinstri í sjónum. Þar er líklegast síldartorfa á ferð og stefnir hún að brúnni. Íbúar á svæðinu hafa einnig séð háhyrninga innan við brúna sem rennir enn frekar stoðum undir það að síldin sé farin að ganga undir hana.

Kolgrafafjörður og nágrenni from Tomas Kristjansson on Vimeo.


Tengdar fréttir

Síldin mögulega komin í Kolgrafafjörð

Síld virðist vera farin að leita inn á Kolgrafafjörð á Snæfellsnesi og hafa háhyrningar sést þar á ferð innan við brúnna, sem er á þverun fjarðarins.

Heimamenn vilja útiloka síld frá Kolgrafafirði

Bæjarráð Grundarfjarðar skorar á Sigurð Inga Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, að leyfa lokun Kolgrafafjarðar án tafar vegna hættu á frekari síldardauða í firðinum.

Mikið inngrip að loka Kolgrafafirði

Það er tæknilega mögulegt að loka Kolgrafafirði til að koma í veg fyrir síldargöngur inn í fjörðinn, en slík framkvæmd er hins vegar það mikið inngrip sem slík hún þyrfti að öllum líkindum að fara í umhverfismat.

Flotinn í startholum fyrir síldveiðar í Breiðafirði

Smábátar hafa hafið veiðar á síld í reknet við norðanvert Snæfellsnes. Hrannar Pétursson hafnarvörður í Stykkishólmi segir veiðna vera fína hjá litlu bátunum. Tvö stór skip hafa einnig hafið veiðar og er talið að eftir viku verði flotinn mættur á svæðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×