Sport

Pissaði á sig á meðan liðið hans vann

Áhorfandinn umræddi.
Áhorfandinn umræddi.
Kansas City Chiefs vann sjöunda leikinn í röð í NFL-deildinni í gær. Einn stuðningsmaður liðsins, sem mættur var á völlinn, missti af leiknum.

Svo virðist sem stuðningsmaðurinn hafi farið heldur geyst í notkun áfengra drykkja í aðdraganda leiksins. Þannig lognaðist hann útaf á Arrowhead-leikvanginum í Kansas þrátt fyrir að leikurinn væri afar spennandi.

Áhorfandi í Kansas tók meðfylgjandi myndir þar sem virðist sem stuðningsmaðurinn hafi pissað á sig. Ekki svo sem sá fyrsti sem lendir í því sökum áfengisneyslu.

Chiefs unnu 17-16 sigur á Houston Texans í leiknum og er eina taplausa liðið í NFL.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×