Borgarstjórinn í Toronto einangraður Guðsteinn Bjarnason skrifar 13. nóvember 2013 11:00 Rob Ford á borgarstjórnarfundi í Toronto. Mynd/EPA „
Við þurfum bara að búa til box utan um borgarstjórann til þess að geta komið hlutunum í verk,” segir borgarráðsmaður. Borgarráð Toronto ætlar ekki að láta Rob Ford borgarstjóra komast upp með að stjórna borginni, þótt hann neiti að segja af sér. Framferði hans hefur vakið hneykslun margra landsmanna og kröfur um afsögn orðið æ háværari, eftir að fram komu myndbönd af honum þar sem hann er annars vegar í „fyllerísrugli”, eins og hann orðar það sjálfur, og hins vegar æfur af reiði að hóta mannsmorði. Hann hefur heldur betur orðið var við andúð landsmanna undanfarið, meðal annars þegar hann tók þátt í athöfn þar sem aldraðir hermenn frá árum seinni heimsstyrjaldarinnar voru heiðraðir. Gerð voru hróp að honum þegar hann gekk upp að ræðustólnum, og einn þeirra, sem átti að heiðra, neitaði að taka í höndina á honum. Borgarstjórnin á í raun ekki svo erfitt með að útiloka hann frá störfum, því formleg völd borgarstjórans í Toronto eru ekki mikil. Hann hefur atkvæðisrétt í borgarráði, en raunveruleg völd hans felast einkum í pólitískum styrkleika, sem hann getur notað til þess að afla málum fylgis meðal borgarfulltrúanna. Slíku er vart til að dreifa lengur, þar sem hann nýtur ekki trausts samstarfsmanna sinna. Í dag verður borið undir atkvæði í borgarráðinu hvort borgarstjóranum verði gert að taka sér fríi, biðja borgarbúa afsökunar og veita lögreglunni fulla samvinnu.
Mest lesið Appelsínugular viðvaranir og heiðar lokaðar Veður „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Innlent Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Innlent Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Innlent Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? Innlent Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Innlent Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Innlent Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Innlent Clinton lagður inn á sjúkrahús Erlent Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Innlent Fleiri fréttir Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Sjá meira