Áramótauppgjör Vísis heldur áfram og nú er komið að myndböndunum. Vinsælustu og áhugaverðustu myndbönd Vísis árið 2013 eru bæði í léttum dúr og af alvarlegra tagi. Þetta eru myndbönd ársins að mati fréttastofu:
Fastur á Vesturlandsvegi
Mikið óveður skall á höfuðborgarbúum í mars en fréttamaðurinn Þorbjörn Þórðarson lét veðrið ekki á sig fá. Hann sat fastur í bíl sínum á Vesturlandsvegi í tvær klukkustundir.
Mamma þarf að djamma
Söngkonan Jóhanna Guðrún fór á kostum í október með hljómsveitinni Baggalúti í Loga í beinni.
„Þú ert óþverri“
Hasarinn í kring um RÚV náði hámarki við lyftu í Efstaleitinu í nóvember þar sem Páll Magnússon útvarpsstjóri jós svívirðingum yfir fréttamanninn Helga Seljan.
Hurfu sporlaust af Suðurnesjunum
Mannshvörf, þættir Helgu Arnardóttir um mannshvörf á Íslandi, nutu vinsælda á árinu. Mesta athygli vakti þáttur Helgu um þá Óskar Halldórsson og Júlíus Karlsson, sem hurfu sporlaust í Keflavík þann 26. janúar 1994.
Fór nánast í tvennt
Ísland í dag sagði sögu Kristjáns Guðmundssonar, sem fékk tæp tvö tonn af fiskikörum yfir sig í alvarlegu löndunarslysi á Dalvík.
Ekkert nema kynlíf
Týnda kynslóðin ræddi við Sunnevu Sverrisdóttur, stjórnanda kynlífsþáttarins 2+6.
„Við getum ekki sýnt þjóðinni þetta“
Auddi og Sveppi heimsóttu Katrínu Jakobsdóttur, formann Vinstri grænna, á kosninganótt í apríl. Hún vildi ekki hleypa þeim inn þar sem allt var í drasli.
Skotárás í Hraunbæ
Kvöldfréttir Stöðvar 2 fjölluðu ítarlega um skotárásina í Hraunbæ í byrjun desember, sem endaði með því að karlmaður á sextugsaldri var skotinn til bana af sérsveit lögreglu.
„Þeir elska Davíð“
Þórhildur Þorkelsdóttir ræddi við listmálarann Árna Björn Guðjónsson sem málar myndir af Davíð Oddssyni, fyrrverandi forsætisráðherra, og segir þær seljast eins og heitar lummur.
Flugdólgur í Letterman
Íslenskur flugdólgur vakti heimsathygli í byrjun árs og meðal annars gerði kvöldþáttur Davids Letterman stólpagrín að uppákomunni. Gunnar Reynir Valþórsson fjallaði um málið í Kvöldfréttum Stöðvar 2.
Gyrti niður um sig á Miklubraut
Útvarpsþátturinn Ding Dong sneru aftur í tilefni af 20 ára afmælis útvarpsstöðvarinnar X977. Pétur Jóhann brá sér niður að Miklubraut og sýndi ökumönnum leggi sína.
Kynlíf, óveður og óþverri

Tengdar fréttir

Helstu pistlahöfundar eru konur - Topp tíu listi yfir vinsælustu greinarnar
"Kjánar telja að það sem frægir höfundar skrifa sé aðdáunarvert. En fyrir mína parta; ég les aðeins sjálfum mér til ánægju og mér finnst aðeins það gott sem rímar við minn eigin smekk,“ segir í Birtingi Voltaires.

Fréttir um iPhone og Facebook áberandi árið 2013
Í áramótauppgjöri Vísis sést glöggt að fréttir af viðskiptum snúast ekki bara um hækkanir og lækkanir í Kauphöllinni, heldur alls kyns tækninýjungar og fréttir af fólki úr viðskiptalífinu.