Innlent

Stokkseyrarmálið: Vitnisburður látins manns spilaður af myndbandi

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Davíð Freyr Magnússon (t.v.) og Stefán Blackburn eru meðal ákærðu í málinu.
Davíð Freyr Magnússon (t.v.) og Stefán Blackburn eru meðal ákærðu í málinu. mynd/gva
Aðalmeðferð í Stokkseyrarmálinu heldur áfram í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 13:15 í dag. Þar eru þeir Stefán Logi Sívarsson, Stefán Blackburn, Davíð Freyr Magnússon, Hinrik Geir Helgason og Gísli Þór Gunnarsson ákærðir fyrir frelsissviptingar, líkamsárásir og fjölda annarra brota.

Á dagskrá í héraðsdómi í dag eru meðal annars vitnisburðir tveggja vitna sem finnast ekki, og lýsti embætti ríkissaksóknara óformlega eftir öðru þeirra í gær. Einnig verður tekin skýrsla af lækni sem tók á móti öðru fórnarlambinu eftir árásirnar.

Þá verður spilað myndband af vitnisburði karlmanns sem nú er látinn, en hann var einn gesta í samkvæminu í Breiðholti þar sem ofbeldið gegn mönnunum hófst. Einnig verður spilað myndband sem sagt er sýna líkamsárás eins sakborninganna, Stefáns Blackburn, fyrir utan skemmtistaðinn Faktorý.


Tengdar fréttir

Hótaði fjölskyldunni lífláti: „Ég ætla að byrja á þér“

Fjölskylda barnsmóður Stefáns Loga Sívarssonar gaf skýrslu í morgun í aðalmeðferð Stokkseyrarmálsins. Stefán er meðal annars ákærður fyrir að hafa ráðist inn á heimili foreldra barnsmóðurinnar og hótað fjölskyldunni lífláti.

Gríðarleg leit vegna meints ofbeldishrotta - fjölskyldufólk stöðvað

Tveir menn voru handteknir við Laugarvatn í gærkvöldi eftir viðamiklar aðgerðir lögreglu. Málið tengist hrottalegri líkamsárás. Sjónarvottur við Laugarvatn var á leiðinni heim með fjölskyldu úr sumarfríi þegar við þeim blasti þyrla og lögregluleit.

Stefán Logi járnaður í Miðhúsaskógi

Stefán Logi Sívarsson var handtekinn við sumarbústað í Miðhúsaskógi fyrir stundu. Sérsveit lögreglu stóð að handtökunni, en fimm lögreglubílar voru á staðnum og viðbúnaður mikill.

Ákærðu fá ekki að vera viðstaddir vitnaleiðslur

Fyrirtaka í Stokkseyramálinu svokallaða fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur rétt fyrir hádegi í dag. Þar var tekist á um hvort sakborningum í málinu verði gert að víkja úr dómsal meðan á vitnaleiðslum stendur. Aðalmeðferð í málinu hefst á mánudag og standa yfir í þrjá daga.

Grunaðir um minnst þrjár hrottafengnar líkamsárásir

Stefáni Loga Sívarsson,sem lögregla handtók í Miðhúsaskógi í gær, er meintur höfuðpaur í hrottafengnu líkamsárásarmáli á Stokkseyri. Fjórir sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Hópurinn er grunaður um tvær árásir til viðbótar.

Neituðu sök á hrottafengnum líkamsárásum

Þingfesting fór fram í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli gegn Stefáni Loga Sívarssyni og fjórum öðrum mönnum fyrir tvær hrottafengnar líkamsárásir, mannrán og langvinnar pyntingar um mánaðamót júní og júlí síðastliðinna.

Sjónarvottar segja fórnarlambið hafa verið vankað og blóðugt

Fórnarlambið var illa til reika og vankað. Hann var blóðugur, með marga skurði í andliti, bólginn og átti erfitt með að tala og var illskiljanlegur vegna þess hversu bólginn hann var. Einnig hékk laus flipi úr neðri vör mannsins á stærð við tíu krónu pening.hvern tíma.

Fórnarlamb mannráns með sár eftir svipuhögg á bakinu

Lögregla leitar Stefáns Loga Sívarssonar, sem er grunaður um að hafa svipt mann frelsi sínu, farið með hann til Stokkseyrar og beitt hann hrottalegu ofbeldi. Að minnsta kosti tveir menn sitja í varðhaldi vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×