Sport

Liprir taktar hjá stelpunum | Myndir

Kvennalandsliðin í fótbolta og handbolta mættust í Vodafone-höllinni í kvöld í ágóðaleik styrktar barnaspítala Hringsins.

Eins og sést á meðfylgjandi myndum Valgarðar Gíslasonar, ljósmyndara, þá var góð stemning á vellinum í kvöld og mikið hlegið. Frammistaða fótboltalandsliðsins í handbolta vakti sérstaka lukku.

Liðin mættust bæði í handbolta og fótbolta auk þess sem treyjur voru seldar á uppboði. Allt til styrktar góðu málefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×